Hlý heimili til næstu áratuga.

Borað eftir heitu vatni.

Veitur hugsa í áratugum þegar kemur að uppbyggingu innviða. Til að tryggja heitt vatn fyrir komandi kynslóðir leitum við að nýjum auðlindum og styrkjum þau jarðhitasvæði sem fyrir eru. 

Annars vegar er borað á þekktum jarðhitasvæðum þar sem mögulegt er að auka vinnslu. Hins vegar eru ný svæði rannsökuð í leit að heitu vatni sem getur styrkt afhendingaröryggi og stutt við áframhaldandi uppbyggingu samfélaga. 

Að lokinni hverri borun eru niðurstöður metnar. Þar er meðal annars skoðað hversu mikið vatn fæst úr holunni, hitastig þess og hvort holan nýtist til framtíðarvinnslu. 

Yfirlitið hér að neðan nær til þeirra borstaða sem hafa hlotið nauðsynleg leyfi. Tímasetningar geta breyst eftir framvindu verkefna og undirbúningi á hverjum stað. 

Reykjavík
Geldinganes
Borun er lokið. Borholan gaf heitt vatn í litlu magni og Veitur skoða nú hvort hún sé nýtanleg fyrir hitaveituna. Niðurstöðurnar veita mikilvægar upplýsingar um jarðhita á svæðinu og hvernig auðlindin liggur undir fótum okkar.

Laugardalur
Borað verður við Engjateig og Bolholt. Við Engjateig verða boraðar fjórar holur veturinn 2026-27. Við Bolholt hefjast framkvæmdir í október 2026 og þar verður boruð ein hola fyrir áramót.

Nánari upplýsingar: Borað í Laugardal 2026-27.

Ölfus
Bakki

Borun er lokið. Holan er þriðja vinnsluholan á svæðinu og fyrstu niðurstöður lofa góðu.

Nánari upplýsingar: Ný hola á Bakka í Ölfusi.

Rangárþing ytra
Kaldárholt

Borun á vinnsluholu er lokið og niðurstöður eru í samræmi við væntingar.

Nánari upplýsingar: Vel heppnuð heitavatnshola í Kaldárholti.

Mosfellsbær
Skammidalur

Tvær vinnsluholur eru boraðar í Skammadal. Boranir standa yfir og verða niðurstöður metnar þegar þeim lýkur.

Nánari upplýsingar: Borun í Skammadal.

Við Helgafellshverfi

Tvær vinnsluholur verða boraðar ofan við Úugötu á sama borplani. Undirbúningur aðkomuvegar og borplans stendur yfir. Áætlað er að boranir hefjist undir lok október 2026 og standi fram í janúar 2027.

Nánari upplýsingar: Borað ofan við Úugötu.

Helgadalur

Fyrstu boranir eru áætlaðar árið 2027. Endanleg röð verkefna, fjöldi hola og útfærsla eru í vinnslu.

Borgarbyggð
Borg á Mýrum

Fyrirhugað er að bora rannsóknarholu. Áætlað er að hefja borun í byrjun árs 2027. Endanleg tímasetning ræðst af leyfum, hönnun og framvindu annarra verkefna.

Akranes
Jaðarsbakkar

Fyrirhugað er að bora rannsóknarholu á Jaðarsbökkum. Undirbúningur borplans er á lokastigi og hönnun rafmagns-, vatns- og fráveitutenginga langt komin. Gert er ráð fyrir að fyrstu framkvæmdir á svæðinu hefjist í október og að borun fari fram yfir veturinn 2026-27.

Nánari upplýsingar: Borað eftir heitu vatni á Akranesi.

Hvernig getum við aðstoðað þig?