Vegna viðgerðar verður kaldavatnslaust við Vesturgötu þri 18. mars 09:00 - 16:00. Sjá nánar á korti.
Uppfært kl 11:15 - Vinnu lokið og búið að hleypa á
Vinsamlegast athugið: Á meðan á kaldavatnsleysinu stendur getur verið slysahætta þar sem einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum.
Þurfir þú neysluvatn á meðan á kaldavatnsleysinu stendur geturðu tekið vatn úr heita krananum og kælt það. Vinsamlegast hafðu þó í huga að brennisteinn í vatninu getur valdið sumum óþægindum en er þó skaðlaus.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum skilninginn.