Heita­vatns­laust vegna leka á heita­vatns­lögn í Efsta­sundi 86 – 105

.

Heitavatnslaust er vegna viðgerðar.

Uppfært kl 19:10, Viðgerð er lokið og eiga öll að vera komin með heitt vatn aftur.

Vegna leka á heitavatnslögn verður heitavatnslaust í Efstasundi 86 – 105. 104. Reykjavík frá klukkan 18:00 til 19:00, Unnið er í því gera við lögnina og koma Heitavatninu aftur á og við munum uppfæra hér á síðunni eftir því sem fram vindur.

 

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.