Uppfært kl 15:30: Allir notendur eru komnir með rafmagn.
Uppfært kl 13:30: Unnið er að viðgerðum. Áætlað er að rafmagn verði komið aftur á fyrir klukkan 15:00 ef allt gengur eftir.
Uppfært kl. 11:15, 3.1.2025: Rafmagnslaust er á Hverfisgötu 40–56 vegna bilunar. Bráðabirgðastrengur sem lagður var í nótt fór í sundur vegna umferðarþunga Unnið er að viðgerð og áætlað er að rafmagn verði komið aftur á um kl. 16:00.
Uppfært kl. 10.50 3.1.2025: Bráðabirgðatenging sem gerð var í nótt til að tryggja öllum notendum rafmagn liggur ofanjarðar og þarf að koma henni í jörðu í dag. Þess vegna þarf að grafa í sundur í gangstétt og fyrir innkeyrslu að bílastæði. Reynt verður að halda bílageymslu opinni eins og kostur er, en því miður er ekki hægt að tryggja aðgengi. Unnið verður fram eftir degi til að koma strengnum í jörðu og ganga frá yfirborði, en endanlegur yfirborðsfrágangur verður gerður þegar aðstæður leyfa.
Uppfært kl. 04:25: Allir notendur eru komnir með rafmagn
Vegna bilunar er rafmagnslaust á Hverfisgötu, unnið er að viðgerð. - .
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.