- .
Veitur auka gæði neysluvatnsins
Veitur skola stofnlögn vatnsveitunnar sem liggur frá vatnstökusvæði við Grábrók að Borgarnesi.
Til að takmarka grugg sem hefur verið áskorun í Grábrókarveitu er stofnlögnin skoluð tvisvar til fjórum sinnum á ári.
Það hefur reynst vel, en því miður eru ákveðin svæði á leiðinni sem verða þá vör við meira grugg á meðan því stendur.
Þegar lögnin er skoluð þá fellur þrýstingur á svæðinu í kring og jafnvel verður vatnslaust hluta úr degi.
Hver útskolun tekur 2 til 3 vikur í framkvæmd.
Veitur skola úr lögninni til að tryggja öllum íbúum hreint neysluvatn.
Tengdar fréttir
Vatnsleit við Hvassafell í Borgarfirði