Lítill þrýst­ingur á heitu vatni í Þorláks­höfn

.

Viðgerð á borholu hita­veitu, Þorláks­höfn

*Information in English below *
Uppfært 4.9. kl. 9:00
Bilanagreiningu er að mestu lokið og ljóst að það þarf að skipta út hluta búnaðarins. Í dag verður því varabúnaður fluttur á Bakka þar sem hann verður prófaður og unnið að undirbúningi á endurræsingu. 
Í gærkvöldi og nótt var fullur þrýstingur á heita vatninu í Þorlákshöfn og með góðri samvinnu stórnotenda hefur tekist að tryggja nægt vatn fyrir húshitun á svæðinu.

Vegna bilunar er minni þrýstingur á heitu vatni í Þorlákshöfn.  

Óskað er eftir að íbúar fari sparlega með heita vatnið á meðan viðgerð stendur. Stórnotendur hafa þegar dregið verulega úr sinni notkun til að við getum öll saman tryggt nægt vatn til húshitunar.  

Á meðan nægt vatn er til húshitunar verður áfram hægt að afhenda heitt vatn fyrir sundlaugina.  

Bilunin er í borholudælu sem er í annarri af tveimur borholum þaðan sem heita vatnið fyrir svæðið kemur.  

Á þessari stundu er óljóst hvenær viðgerð lýkur.  

Góð ráð um hvernig við förum sparlega með heita vatnið.  

Við munum upplýsa hér á síðunni eftir því sem fram vindur.  

--------------------------------
Updated 4.9. at 9:00

Troubleshooting is largely complete, and it is now clear that some of the equipment will need to be replaced. Replacement equipment will therefore be transported to Bakki today, where it will be tested and preparations for restarting operations will be made.

Full pressure was maintained in the hot water system in Þorlákshöfn last night and overnight. Thanks to close cooperation with major users, a sufficient supply of hot water for residential heating in the area has been secured.

Due to a malfunction, there is currently reduced hot water pressure in Þorlákshöfn.

Residents are asked to use hot water sparingly while repairs are underway. Large-scale users have already significantly reduced their consumption so that, together, we can ensure that there is sufficient water available for heating homes.

As long as there is sufficient water for domestic heating, hot water will continue to be supplied to the swimming pool.

The malfunction is in a borehole pump located in one of the two boreholes from which the area’s hot water is supplied.

At this time, it is unclear when the repairs will be completed.

Tips for using hot water wisely 

We will provide updates on this page as the situation develops.