Álfa­skeið og Sólvangs­vegur

- .

Við þurfum að endurnýja stofnlagnir á þessu svæði. Gera má ráð fyrir aukinni umferð vinnuvéla og öðru raski á meðan framkvæmdunum stendur. 

Image alt text

Smelltu hér til að stækka mynd

Uppfært 16.5.2023: Mynd uppfærð. Vinna á Sólvangsvegi mun hefjast þar sem rauðu línurnar sjást á neðri hluta myndarinnar, áfanga 4. Malbikun er lokið á fyrsta áfanga og göngustígurinn hefur verið opnaður. Áætlað er að malbikun á stórum hluta framkvæmdasvæðis í Álfaskeið verði lokið um mánaðarmótin maí-júní. Búast má við því að opnar holur muni sjást áfram á ákveðnum svæðum þar sem vinnu er annars lokið, en þær eru nauðsynlegar fyrir tengingar við lok framkvæmda í heild sinni. Veitur munu ganga frá yfirborði sem raskað hefur verið.

Uppfært 21.4.2023: Vinna gengur eftir áætlun. Í vikunni verður innkeyrslu við Álfaskeið 80 og 82 lokað, en aðkoma verður tryggð með hjáleiðum. Gera má ráð fyrir að innkeyrslan verði lokuð í nokkrar vikur. Vinna verður nú hafin við hluta af Sólvangsvegi, annars vegar við Sólvangsveg 1, Álfaskeið 64D og 64E, og hins vegar alveg við heilsugæslustöðina. Óneitanlega er rask mikið í svo stórum framkvæmdum og eðlilegt að íbúar hafi áhyggjur af sínu nánasta umhverfi. Það þarf að grafa djúpa skurði á svæðinu og ljóst að á svæðinu er töluverð klöpp undir sem þarf að höggva í (fleyga) með tilheyrandi ónæði. Stefnt er að því að næst heilsugæslustöðinni verði unnið á laugardögum til að lágmarka truflun á þeirra þjónustu á meðan þessu stendur. Aðgengi gangandi og akandi vegfarenda verður tryggt og að auki höfum við unnið náið með Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins við að tryggja greiða aðkomu sjúkraflutninga og slökkviliðs.

Uppfært 28.3.2023: Vinna við lagningu stofnæðar hitaveitu Veitna gengur eftir áætlun og unnið er af kappi við að klára fyrsta áfanga á næstu vikum. Þá verður hægt að opna göngu- og hjólastíg að nýju við stýrihús Veitna við Álfaskeið. Allt kapp er lagt á að klára þann hluta sem fyrst og ganga vel frá svæðinu. Áfram verður unnið á bílastæði, á milli húsa nr.90/92 og 86/88 sem og í götunni. Þau svæði sem nú er unnið við á staðnum verða kláruð áður en vinna við síðasta áfanga hefst, en sá hluti er á Sólvangsvegi.

Uppfært 6.2.2023: Unnið er að lagningu stofnæðar hitaveitu Veitna sem liggur frá stýrihúsi Veitna sem staðsett er á milli Fjarðarhrauns og Álfaskeiðs 96 að dælustöð við Lækjargötu, meðfram Álfaskeiði og Sólvangsvegi.

Verkið er unnið í 4 áföngum. Nú er vinnan langt komin í áfanga nr. 1. Til að tryggja að verklok verði á tilsettum tíma verður byrjað að vinna við áfanga nr. 2 samhliða sem verkinu fleygir fram.

Uppfært 16.12.2022: Framkvæmdir eru í gangi meðfram göngustíg næst stýrihúsi við Álfaskeið og er mikil vinna við að fleyga klöpp með tilheyrandi hávaða og rask fyrir íbúa. Gert verður hlé á framkvæmdum yfir jól og nýár frá 21 desember 2022 til 8 janúar 2023 og verður því engin hávaði vegna framkvæmda yfir hátíðarnar.

Um verkefnið

Við þurfum að endurnýja stofnlagnir á þessu svæði. Viðeigandi merkingar sem kynna hjáleiðir gangandi og akandi vegfarenda verður komið upp á svæðinu til að tryggja öryggi. Gera má ráð fyrir aukinni umferð vinnuvéla og öðru raski á meðan framkvæmdunum stendur. 

Vinnusvæði

Frá stýrihúsi Veitna sem staðsett er á milli Fjarðarhrauns og Álfaskeiðs 96 að dælustöð við Lækjargötu, meðfram Álfaskeiði og Sólvangsvegi.

Tímaáætlun

Frá lok nóvember 2022 til september 2023.

Verkefnastjóri Veitna

Kolbeinn Björgvinsson

Verktaki

Gleipnir verktakar ehf, tengiliður verktaka, Hrannar Máni Gestsson s: 773-6933.

Umsjónarmaður framkvæmdar

Unnar Víðisson, Efla Verkfræðistofa, Póstfang: unnar.vidisson@efla.is, S: 665-6225, 412-6225,

Theódór Kristjánsson, Efla Verkfræðistofa, s: 412 6140 / 660 5928, theodor.kristjansson@efla.is