Úthlíð: Lágur þrýst­ingur á kalda vatninu

.

Information in English below

Lágur þrýstingur er á kalda vatninu í Úthlíð í Bláskógabyggð vegna lágrar vatnsstöðu.

Langvarandi þurrkar hafa gert það að verkum að staðan á vatnstökusvæði fyrir Úthlíð er lág. Mikið er af fólki i bústöðum um páskahelgina og þá eykst notkun. Vatnsbólið fyrir Úthlíð liggur hátt og þýðan hefur ekki náð þangað. Úrkoman í janúar og febrúar var aðeins 14% af meðaltalinu fyrir þann árstíma.

Til að bæta þrýsting á vatninu fyrir öll er óskað eftir því að gestir á svæðinu fari vel með kalda vatnið:

  • Nota sturtuna, en hafa hana styttri
  • Láta ekki kalda vatnið renna viðstöðulaust að óþörfu
  • Nota spartakkann á klósettinu þegar það dugar

----------

Úthlíð: Low pressure in the cold water system

There is low pressure in the cold water system in Úthlíð, in Bláskógabyggð, due to low water levels.

Prolonged drought has caused water levels in the source area supplying Úthlíð to be low. There are many people staying in summer houses over the Easter weekend, which increases usage. The water source for Úthlíð is located at a high elevation, and thawing has not yet reached it. Precipitation in January and February was only 14% of the average for that time of year.

To help improve water pressure for everyone, guests in the area are asked to use cold water carefully:

  • Use the shower, but keep it shorter
  • Do not let cold water run unnecessarily
  • Use the economy/half-flush button on the toilet