Kárs­nesæð meðfram Hafn­ar­fjarð­ar­vegi, Kópa­vogur

- .

Veitur endurnýja hitaveitulagnir

Um verkefnið: Endurnýjun hitaveitulagna frá Borgarholtsbraut meðfram Hafnarfjarðarvegi. Hjólastígur verður lokaður á meðan framkvæmdum stendur. Hjáleiðir verða merktar, en ljóst að þær eru lengri vegna friðunar á landi næst hjólastíg.

Að lagnavinnu lokinni mun Kópavogsbær endurgera hjóla- og göngustíg meðfram Hafnarfjarðarvegi.

Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks og góða umgengni við friðað land.

Verkið er áfangaskipt:

Júní til október 2025: Frá undirgöngum neðst í brekkunni Kársnesmegin að hringtorgi við Sunnuhlíð. Þessum áfanga er lokið.

Vor og fram á haust 2026: Frá að Borgarholtsbraut að hringtorgi við Sunnuhlíð.

Uppfært 29.5.2026: Vinna við fyrsta hluta seinni áfanga er hafin. Þegar Veitur hafa við að leggja lögnina verður hún tengd með tilheyrandi heitavatnsleysi og verður það tilkynnt með fyrirvara. Að verki loknu tekur Kópavogsbær við og leggur hjóla og göngustíg í samvinnu við Betri samgöngur.  Hjáleiðir gangandi og hjólandi vegfarenda í fyrsta áfanga má sjá á meðfylgjandi myndum.

2026-05-26 Karsnesaed 1 hjaleid

2026-05-26 Karsnesaed 2 hjaleid




2026-05-26 Karsnesaed 3 hjaleid



Uppfært 11.5.2026:
Vinna hefst við fyrsta hluta seinni áfanga í vikunni. Unnið verður frá Borgarholtsbraut 1-7 og niður að Skjólbraut. Hjáleið gangandi og hjólandi verður um Skjólbraut og brú yfir skurð að stígnum.

--------------------------------------

Uppfært 29.9.2025: Veitur hafa lokið vinnu við fyrri áfangann og Kópavogsbær ásamt Betri samgöngum hafa tekið við og gera nýja hjóla- og göngustíginn. Veitur halda áfram næsta vor við seinni áfangann.
Uppfært 26.8.2025:
Lagnavinnu í fyrri áfanga er að ljúka. Nýja lögnin verður tengd þann 2. september og þá verða afmarkaðir hlutar Kársness heitavatnslausir: Kópavogsbraut 1 (Sunnuhlíð), Borgarholtsbraut 17 (Kópavogslaug) og Vesturvör 44-48 (Sky Lagoon). Kársnesæð er stofnlögn sem fæðir Kársnesið, en með góðum undirbúningi er hægt að halda heitu vatni á flestum húsum í hverfinu. Þegar tengingu er lokið er hægt að loka skurðum og afhenda Kópavogsbæ svæðið til hjóla- og göngustígagerðar.
Uppfært 18.6. 2025: Vegna mistaka var sett inn röng mynd af hjáleið þann 12.6. Þessi mynd sýnir rétta hjáleið í fyrsta áfanga. Unnið er að lagfæringum á hjáleið til að öll komist örugg leiðar sinnar.

Karsnesaed 1 afangi

Uppfært 12.6.2025:
Hjáleiðir gangandi og hjólandi vegfarenda í fyrsta áfanga má sjá hér
2025-06-hjaleid Karsnesaed afangi1

Uppfært 12.6.2025:
Til að tryggja öryggi gangandi vegfarenda er stoppistöð Strætó Kópavogsdalur (Kársnesmegin) óvirk á meðan framkvæmdum stendur og Leið 1 og 2 stoppar því ekki þar. Sjá mynd
2025-06-12 stoppistod ovirk

Vinnusvæði: Í hjólastíg meðfram Hafnarfjarðarvegi, frá undirgöngum að Borgarholtsbraut

Tímaáætlun: Júní 2025 til september 2026

Verktaki: Stéttarfélagið

Eftirlitsaðili: Hnit Verkfræðistofa

Verkefnastjóri: Hörður Jósef Harðarson