- .
Framkvæmdir á vatnsveitu

Um verkefnið: Vegna lagningar á nýrri vatnsveitulögn við Vitastíg vinna Veitur að framkvæmdum sem miða að því að tryggja rekstraröryggi og bæta aðgengi að köldu vatni.
Af þeim sökum verður lokað fyrir umferð við Vitastíg. Hjáleiðir fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur verða settar upp og sérstök áhersla lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks meðan á framkvæmdum stendur.
Vinnusvæði: Vitastígur
Tímaáætlun: 7. apríl til 21. apríl 2026
Samskipti: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna