Um verkefnið: Verkefnið er endurnýjun og stækkun á háspennustreng meðfram Suðurgötu.
Strengurinn mun þurfa að þvera Þorragötu, en ólíklegt er að loka þurfi götunni á meðan þar sem hægt er að draga strenginn í gegnum rör sem þar eru.
Veitur leggja áherslu á öryggi vegfarenda og starfsfólks við vinnusvæðið og munu ganga frá öllu yfirborði að framkvæmd lokinni.
Tímaáætlun: 12.6.-30.7. 2024.
Vinnusvæði: Meðfram Suðurgötu á milli Þorragötu og Eggertsgötu.
Verkefnastjóri Veitna: Finnbogi Karlsson
Samskipti: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna
Verktaki: PK Verk
Eftirlit: Lota