Vegna viðhalds fer skólp í sjó frá dælu­stöð­inni við Stefn­isvog

- .

Óhreinsað skólp fer tímabundið í sjó frá dælustöð

Uppfært 18.9. kl. 15.50: Vinna gekk vonum framar og lauk kl. 13 í dag eftir 4 klst. vinnu. Dælustöðin er því aftur í fullum rekstri.
Vegna viðhalds fer skólp í sjó frá dælustöðinni við Stefnisvog dagana 18.-20. september.

Fólki er bent á að halda sig frá sjónum og ströndinni þar sem skólp fer í sjó.

Veitur fylgjast með ströndinni og hreinsa fjörur.

Neyðarlúgur fráveitu eru til þess gerðar að skólp flæði ekki inn í híbýli fólks ef dælustöðvar bila eða stöðvast.

Spurt og svarað um fráveitu

Hvernig getum við aðstoðað þig?