Holts­gata, Reykjavík

.

Viðgerð á kaldavatnslögn

Um verkefnið: Veitur vinna að viðgerðum á kaldavatnslögn vegna leka.

Framkvæmdir fara fram við Holtsgötu 18. Á meðan á framkvæmdum stendur verður Holtsgata þveruð og verður því lokað fyrir umferð í gegn og breytist í botnlanga.

Hjáleiðir fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur verða settar upp þar sem við á og lögð verður sérstök áhersla á öryggi allra vegfarenda og starfsfólks á svæðinu.

Að framkvæmdum loknum verður gengið frá yfirborði svæðisins.

Vinnusvæði: Holtsgata

Tímaáætlun: 3. júní

Hvernig getum við aðstoðað þig?