- .
Rannsókarhola boruð við Jaðarsbakka í vetur

Veitur hefja borun á rannsóknarholu á Jaðarsbökkum um áramótin 2026-27. Vitað er að á Skaganum er hiti í jörðu, en hingað til hefur ekki fundist vatn á sömu stöðum.
Staðsetningin var lögð til af sérfræðingum ÍSOR í samvinnu við auðlindasérfræðinga Orkuveitunnar. Líklegast þykir að ef það er nýtanlegur jarðhiti á Akranesi þá sé hann á þessum stað.
Framkvæmdir hefjast í október
Undirbúningur borplans hefst í október. Þegar borplanið er tilbúið ásamt tengingum fyrir vatn, rafmagn og fráveitu verður hægt að byrja að bora.
Hljóðlátari bor
Borinn sem notaður verður við framkvæmdina er rafknúinn. Hann er því hljóðlátari og losar minna af mengandi efnum en hefðbundnir borar sem knúnir eru díselolíu.
Við borunina er notað vatn og leir til að flytja borsvarf upp úr holunni og verja mögulegar vatns- og jarðhitaæðar.
Unnið er í góðu samstarfi við sveitarfélagið að því að tryggja að fínefni sem berst upp með vatninu hafi sem minnst áhrif á umhverfið.
Vatnið og rafmagnið sem er notað
Heimili og fyrirtæki á Akranesi ganga fyrir með vatn og rafmagn og borframkvæmd á ekki að hafa áhrif á afhendingargetu.
Tímaáætlun
Undirbúningur borplans
• Stefnt er að því að undirbúningur hefjist í október.
• Svæðið verður undirbúið fyrir borun og nauðsynlegur búnaður settur upp.
• Húsnæði næst framkvæmdasvæðinu verður ástandsskoðað áður en framkvæmdir hefjast.
Borun rannsóknarholu
• Stefnt er að því að borun hefjist undir lok desember.
• Endanleg tímasetning getur tekið breytingum eftir framvindu verksins og veðuraðstæðum
• Nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur.
Tímaáætlunin getur breyst eftir framgangi verkefnisins og borframkvæmda annars staðar.
Spurt og svarað
Hvers vegna er verið að bora á Akranesi?
Akranes er ört vaxandi samfélag og því mikilvægt að tryggja örugga afhendingu heits vatns til framtíðar. Í dag kemur allt heitt vatn til bæjarins um eina stofnlögn frá Deildartungu. Ef nýtanlegt heitt vatn finnst á Akranesi myndi það styrkja afhendingaröryggi og skapa mikilvægan varaforða innanbæjar.
Af hverju var ákveðið að framkvæma ekki yfir sumarið?
Veitur ákváðu frá upphafi að fresta framkvæmdum fram yfir sumarið svo íbúar og gestir gætu notið útivistarsvæðanna við Langasand að sumri til.
Verður mikill hávaði frá framkvæmdunum?
Borinn er rafknúinn og því hljóðlátari en hefðbundnir borar. Þau sem eru næst framkvæmdasvæðinu geta þó orðið vör við hljóð frá borun og búnaðarflutningum meðan á framkvæmdum stendur.
Verða mikil ljós við borinn?
Framkvæmdasvæðið verður vel upplýst og gerðar ráðstafanir til að takmarka áhrif þessa á nágranna.
Hvað verður um efnið sem kemur upp úr holunni?
Við borunina er notað vatn og leir til að flytja borsvarf upp úr holunni. Vatninu verður veitt um regnvatnslögn fjær borstað.
Hvað gerist ef heitt vatn finnst?
Ef rannsóknarholan gefur góðar niðurstöður verður metið hvernig hægt er að nýta auðlindina og hvaða næstu skref eru farsælust fyrir hitaveituna á Akranesi.
Getur tímaáætlunin breyst?
Já. Tímaáætlanir geta tekið breytingum eftir framvindu verksins og öðrum ytri þáttum. Veitur munu upplýsa um allar breytingar þegar þær liggja fyrir.