.
Veitur bora til að tryggja nægt heitt vatn fyrir vaxandi samfélag.

Veitur standa að jarðhitaleit á Reykjum og í Skammadal til að auka afkastagetu hitaveitunnar á höfuðborgarsvæðinu, þar með talið í Mosfellsbæ. Borun stendur nú yfir í Skammadal og samhliða henni er unnið að undirbúningi borplans nærri Úugötu.
Undirbúningur borplans
Unnið er að gerð aðkomuvegar og jarðvinnu fyrir borplanið ofan við Úugötu. Aðkomuvegur verður Skammadalsvegur norðan megin og hann styrktur. Umferð á því ekki að fara í gegnum íbúabyggð.
Framkvæmdirnar geta orðið sýnilegar frá nærliggjandi svæðum. Íbúar og vegfarendur geta orðið varir við vinnuvélar og aukna umferð meðan borplönin eru undirbúin og búnaður fluttur á milli staða.
Veitur leggja áherslu á öryggi starfsfólks og vegfarenda og ganga frá umhverfi í lok borana.
Hljóðlátari bor
Rafknúni borinn sem hefur verið notaður í Skammadal verður notaður áfram við framkvæmdirnar. Rafknúinn bor er hljóðlátari og umhverfisvænni en hefðbundinn bor. Þau sem eru næst framkvæmdasvæðinu geta þó orðið vör við borunina og hljóð frá vinnuvélum og flutningi búnaðar.
Veitur eru að gera hljóðmælingar í Skammadal í nágrenni borsins, meðal annars til að meta þær fyrirbyggjandi aðgerðir sem þarf að grípa til í nágrenni íbúabyggðar.
Lífríkið nýtur vafans
Skolvatni og borsvarfi frá bornum verður veitt aftur niður í eldri borholur í Skammadal. Það á því ekkert að að fara í Skammadalslæk eða Varmá.
Áfram verður fylgst vel með Varmá, lífríkinu og umhverfinu. Við erum með áætlun um að að bregðast hratt við ef vísbendingar eru um að fyrirbyggjandi aðgerðir séu ófullnægjandi.
Tímaáætlun
Núverandi borhola
• Borun stendur yfir.
• Þegar borun lýkur verður borinn fluttur á borplanið ofar í Skammadal.
Borplan ofan við Úugötu
• Undirbúningur vegar og borplans stendur yfir.
• Gert er ráð fyrir tveimur borholum á staðnum.
• Stefnt er að því að borun hefjist í lok október þegar vinnu lýkur í Skammadal.
• Hvora hola um sig tekur um 6 vikur að bora.
• Endanleg tímasetning ræðst af framvindu borunar í Skammadal.
Borplan hinu megin við Skammadalsveg
• Borplanið og vegurinn verða gerð þegar planið við Úugötu er tilbúið.
• Þar er fyrirhugað að bora eina holu.
Tímaáætlunin getur breyst eftir framvindu verksins. Nánari upplýsingar verða birtar þegar tímasetningar liggja fyrir.
Spurt og svarað
Hvers vegna er verið að bora á þessum stað?
Boranirnar eru hluti af jarðhitaleit Veitna á Reykjum og í Skammadal. Svæðið er eitt gjöfulasta jarðhitasvæði á Íslandi og það er mat sérfræðinga að það geti gefið meira án þess að það hafi áhrif á sjálfbærni þess.
Markmiðið er að auka afkastagetu hitaveitunnar og tryggja nægt heitt vatn til framtíðar fyrir vaxandi samfélag á öllu höfuðborgarsvæðinu, þar með talið í Mosfellsbæ.
Hvenær hefst næsta borun?
Stefnt er að því að borun ofan við Úugötu hefjist undir lok október. Tímasetningin ræðst af því hvenær borun í núverandi holu lýkur.
Verður mikill hávaði frá framkvæmdunum?
Það verða settar upp varnir sem eiga að takmarka hljóðbærni frá borstað verulega. Auk þess er borinn rafknúinn og því hljóðlátari en hefðbundnir borar. Íbúar næst framkvæmdasvæðinu geta þó orðið varir við lágt suð frá borun og einstaka hljóð þegar búnaður er settur upp eða fluttur. Alla jafna heyrist mest fyrstu þrjá dagana sem borað er.
Verður aukin umferð á svæðinu?
Íbúar og vegfarendur geta orðið varir við vinnuvélar og aukna umferð meðan borplönin eru undirbúin og búnaður fluttur. Aðkomuvegurinn er Skammadalsvegur og umferð fer um hann en ekki íbúabyggð. Veitur leggja áherslu á að tryggja öryggi vegfarenda og starfsfólks.
Hvað verður um vatnið sem notað er við borun?
Skolvatninu verður veitt aftur niður í eldri borholur í Skammadal. Engu skolvatni eða borsvarfi verður veitt í Skammadalslæk eða Varmá.
Verður fylgst með umhverfinu?
Já. Áfram verður fylgst með Varmá, lífríkinu og umhverfinu í kringum framkvæmdasvæðið. Lífríkið fær að njóta vafans á meðan á framkvæmdunum stendur.
Getur tímaáætlunin breyst?
Já. Sami bor er notaður á fleiri stöðum og framvinda á hverjum stað getur breytt tímaáætlun. Upplýsingarnar verða uppfærðar þegar tímasetning liggur fyrir.
Verkefnastjóri: Jón Örn Jónsson
Borverktaki: Jarðboranir
Samskipti: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna