Akra­nes: Lægri þrýst­ingur á kalda vatninu

.

Information in English below

Nú stendur yfir mesta þurrkatíð á þessum árstíma í nærri heila öld. Vatnsbólin sem færa Skagamönnum kalda vatnið eru sérstaklega viðkvæm fyrir veðurfari og þar er vatnsstaðan lág.

Veitur hafa lækkað þrýsting á kalda vatninu til að spara það, en allir íbúar eiga að fá nægt vatn til sín. Þrýstingi er stjórnað handvirkt og það tekur ávallt einhvern tíma áður en hann nær jafnvægi alla leið í kranann.

Það má gera ráð fyrir lægri þrýstingi á vatninu næstu vikur og fólk er eindregið hvatt til að fara sparlega með kalda vatnið til að tryggja að allir íbúar fái nægt kalt vatn og loðnuvertíðin gangi upp.

Það er mikilvægt fyrir okkur að vita ef ekkert vatn berst í húsin, en við mælum með að það verði fylgst með hér á síðunni þar sem við uppfærum reglulega.

Athugið að Veitur svara alfarið fyrir kalda vatnið á Akranesi og allar aðgerðir eru af frumkvæði Veitna til að tryggja nægt vatn fyrir íbúa og fyrirtæki næstu vikur.

Það sem hægt er að gera heima við

Vatn sem rennur viðstöðulaust eyðir miklu vatni. Þar eru mörg tækifæri til að fara vel með og tryggja íbúum, heilbrigðisþjónustu og fyrirtækjum nægt neysluvatn á meðan vertíð og þurrkar standa yfir.

Að drekka nóg vatn er nauðsynlegt og þarf ekki að spara það við sig frekar en það vatn sem notað er í matseld.

Sturtan: Styttum sturtuna eins og mögulegt er.

Baðkarið: Böðum börnin, en förum sjálf í sturtu

Heita og kalda potta ætti ekki að nota á meðan þessu stendur.

Uppvask: Setjum tappann í vaskinn frekar en að vaska upp undir rennandi vatni. Stórar skálar virka líka vel.

Þvottavélar og uppþvottavélar: Setjum vélina aðeins í gang ef hún er full og notum sparstillingar á henni.

Salernið: Látum laga sírennsli í klósettkassanum ef það er til staðar.

Utanhúss er mikilvægt að nota ekki slöngu til að þrífa stéttar, húsveggi eða glugga. Ef nauðsynlegt er að þvo bílinn eða gluggana, þá er betra að nota kælt hitaveituvatn í fötu.

Viðbótar vatnstökusvæði fyrir Akranes eru í forgangi hjá Veitum, en rannsóknir, samningar við landeigendur, borun og lagnavinna geta tekið mörg ár. Gert er ráð fyrir að loðnuvertíðin framundan verði 2-3 vikur og með samstilltu átaki tryggjum við að öll hafi nægt vatn og verðmætasköpun á Skaganum haldi áfram.

Meira um málið hér.
-----------------------------
Akranes: Lower Pressure on Cold Water Supply

The most severe drought at this time of year in nearly a century is currently underway. The water sources that supply Akranes residents with cold water are particularly sensitive to weather conditions, and water levels are now low.

Veitur has reduced the pressure in the cold water system to conserve supplies, but all residents should still receive sufficient water. Pressure is controlled manually, and it always takes some time before it stabilizes all the way to household taps.

Lower water pressure can be expected in the coming weeks. Residents are strongly encouraged to use cold water sparingly to ensure that households receive enough cold water and the capelin fishing season can start and continue without disruption.

It is important for us to know if no water is reaching homes. We recommend monitoring updates here on this page, as information will be updated regularly.

Please note that Veitur is fully responsible for the cold water supply in Akranes, and all measures are being taken on Veitur’s initiative to ensure sufficient water for residents and businesses in the coming weeks.

What You Can Do at Home

Continuously running water wastes a significant amount. There are many opportunities to conserve water and ensure sufficient drinking water for residents, healthcare services, and businesses while the fishing season and drought continue.

Drinking enough water is essential and does not need to be restricted, nor does water used for cooking.

Showering: Keep showers as short as possible.

Bathtubs: Bathe children if needed, but adults should use the shower instead.

Hot tubs and cold tubs: Should not be used during this period.

Dishwashing: Use a sink stopper instead of washing under running water. Large bowls also work well.

Washing machines and dishwashers: Only run when full and use eco-settings.

Toilets: Repair any continuous running (leaks) in toilet cisterns.

Outdoors: Do not use hoses to clean sidewalks, house walls, or windows. If it is necessary to wash cars or windows, it is better to use cooled geothermal water in a bucket.

Additional water intake areas for Akranes are a priority for Veitur. However, research, agreements with landowners, drilling, and pipeline installation can take many years. The upcoming capelin season is expected to last 2–3 weeks, and through a coordinated effort, we can ensure that everyone has sufficient water and that economic activity on Akranes continues.
More on the matter here (in Icelandic)

Hvernig getum við aðstoðað þig?