.
Rafmagnslaust er vegna háspennubilunar frá Álfsnesi að Tungubakka þri. 29. nóvember kl. 13:30
Uppfært kl. 16:50
Viðgerð lokið og allir ættu að vera komnir með rafmagn.
Uppfært kl. 14:12
Rafmagn komið aftur á, viðgerð fyrir Fitjakoti og Víðnes stendur en yfir.
Rafmagnslaust er vegna háspennubilunar frá Álfsnesi að Tungubakka þri. 29. nóvember kl. 13:30. Sjá nánar á korti. Unnið er að viðgerð.
Vonast er til að rafmagn verði aftur komið á innan stundar.
Við bendum þér á að slökkva á þeim rafmagnstækjum, sem ekki slökkva á sér sjálf og geta valdið tjóni þegar rafmagn kemur á að nýju. Það á sérstaklega við um eldavélar, mínútugrill og fleiri hitunartæki. Eins ráðleggjum við þér að slökkva á viðkvæmum tækjum á borð við sjónvörp.
Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.