Leki kom upp í dag á aðveitulögn hitaveitunnar. Unnið er að viðgerð en búast má við að hún taki nokkurn tíma.
Það ættu engir íbúar að verða fyrir heitavatnsleysi vegna lekans.
Uppfært 27.9.2024: Lekinn er takmarkaður, en það er flókið verk að laga lögnina á þessum stað. Stefnt er að því að lagfæring verði hafin þriðjudaginn 1. október.