.
Viðgerð á heitavatnslögn á Nýbýlavegi
Veitur munu sunnudaginn 25. ágúst frá kl. 8.00 og fram á kvöld vinna að viðgerð á heitavatnslögn sem fór að leka í vikunni. Þá verður Nýbýlavegur þveraður og þar með lokaður líkt og sést á myndinni að ofan.
Það verður heitavatnslaust við Aspargrund og hluta af Birkigrund sunnudaginn 25. ágúst kl. 10-16. Nánar sést á kortinu hvaða hús er um að ræða.
Mikilvægt er að íbúar hafi skrúfað fyrir krana til að koma í veg fyrir slys og tjón þegar vatnið kemur á aftur.
Við bendum húseigendum á að huga að sínum innanhússkerfum.