Verkefnið: Í næstu viku hefja Veitur framkvæmdir í hreinsistöð skólps við Klettagarða. Kominn er tími til að endurnýja búnað svo auka megi rekstraröryggi stöðvarinnar. Áætlað er að verkið taki 6-7 vikur og á meðan á því stendur aukast líkur á þvi að hleypa þurfi óhreinsuðu skólpi um neyðarlúgur í sjó, einkum í vætutíð.
Hægt er að fylgjast með stöðu neyðarlúga dælu- og hreinsistöðva fráveitu Veitna á Fráveitusjánni, https://www.veitur.is/fraveitusja. Sett verða upp upplýsingaskilti við fjörur í nágrenni hreinsistöðvarinnar ef neyðarlúga er opin svo fólk haldi sig fjarri sjónum. Í framhaldinu verður fylgst með fjörum og þær hreinsaðar ef á þarf að halda. Losun skólps í sjó í skamman tíma hefur ekki varanleg áhrif á lífríkið og örverur í skólpi lifa einungis örfáar klukkustundir í sjónum. Rusl í skólpinu er stærra vandamál. Það velkist um í sjónum og getur skolað upp í fjörur, öllum til ama. Fólk er því enn og aftur minnt á að ekkert á að fara í klósett nema líkamlegur úrgangur og klósettpappír.
Vinnusvæði: hreinsistöð skólps við Klettagarða
Tímaáætlun: 19. september 2022 – 7. nóvember 2022
Umsjónarmaður framkvæmdar hjá Veitum: Snorri Halldórsson
Uppfært 25.11.2022: Við þurfum aftur að framlengja þessa framkvæmd núna til 12. desember.
Uppfært 10.11.2022: Við þurfum að framlengja þessa framkvæmd til 25. nóvember.