Vegna viðhalds fer skólp í sjó frá dælu­stöð­inni við Kirkju­sand

- .

Óhreinsað skólp fer tímabundið í sjó frá dælustöð.

Vegna nauðsynlegs viðhalds fer skólp í sjó frá dælustöðinni við Kirkjusand/Laugalæk vikuna 19.-21.ágúst.
Uppfært 16.8.: Ákveðið hefur verið að stytta tímann á viðhaldinu og því lýkur því seinnipartinn miðvikudaginn 21. ágúst.

Fólki er bent á að halda sig frá sjónum og ströndinni þar sem skólp fer í sjó.

Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.

Neyðarlúgur fráveitu eru til þess gerðar að skólp flæði ekki inn í híbýli fólks ef dælustöðvar bila eða stöðvast.

Spurt og svarað um fráveitu

Hvernig getum við aðstoðað þig?