Vegna viðhalds fer skólp í sjó frá dælu­stöð­inni við Faxa­skjól - Reykjavík

- .

Skólp fer í sjó frá dælustöð.

Vegna viðhalds fer skólp í sjó frá dælustöðinni við Faxaskjól - . Óhreinsuðu skólpi verður veitt um yfirfallsdælur sem dæla út um lögn u.þ.b. 200 metra frá landi. Einnig gætu neyðarlúgur opnast og óhreinsað skólp runnið í sjó nær landi við dælustöðina.

Við vonum að ekki komi til þess að neyðarlúgur opnist, en á meðan á þessu stendur er þó hætta á að óhreinsað skólp komist í sjóinn við dælustöðina og bendum sérstaklega sjósundsfólki á það.

Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.

Spurt og svarað um fráveitu

Hvernig getum við aðstoðað þig?