- .
Veitur tengja hitaveitulagnir
Veitur munu tengja hitaveitulagnir fyrir nýbyggingar í nágrenninu. Í götunni liggja lagnir sem þarf að tengja við og á meðan því stendur þarf að loka götunni. Akandi vegfarendur eru beðnir að nýta aðrar götur þessa daga.
Veitur munu tryggja að gangandi og hjólandi vegfarendur komist leiðar sinnar á öruggan máta.
Loka þarf fyrir umferð á svæðinu á myndinni frá kl. 10 þriðjudagsmorgun 3. október og þar til kl. 16 fimmtudaginn 5. október.