Heitt vatn komið á í Breið­holti

.

Heitavatnslaust er vegna bilunar.

Uppfært 23:10 - Ef einstaka ofn er kaldur í húsum þá gæti verið loft á honum.. Hér má finna spurningar og svör við algengum bilunum og hvað er hægt að gera við þeim.

Uppfært 23:05
- Búið er að ná upp fullum þrýsting á kerfið.

Uppfært 22:35
- Rafmagn er komið á allar dælustöðvar. Unnið er að ná upp þrýsting á kerfið.

Uppfært 22:05
- Rafmagn er komið á hluta dælustöðva. Byrjað er að byggja upp þrýsting. Það gæti tekið nokkra tíma að ná fullum þrýsting á kerfið.

Uppfært 21:47
- Flest allir notendur ættu að vera komnir með rafmagn. Eingöngu rafmagnslaust í kringum Stekkjarbakka. Enn eru dælustöðvar rafmagnslausar og því er enn heitavatnslaust.

Uppfært 21:40
- Dælustöð hitaveitu varð straumlaus vegna háspennubilunar. Þegar rafmagn kemur aftur á getur tekið tíma að ná fullum þrýstingi aftur á heita vatnið.

Vegna háspennubilunar er heitavatnslaust í hluta Breiðholts . Sjá nánar á korti.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Hvernig getum við aðstoðað þig?