Vegna viðhalds fer mögu­lega óhreinsað skólp í sjó við Ánanaust

.

Skólp fer hugsanlega óhreinsað í sjó frá hreinsistöð Veitna við Ánanaust

Vegna botnhreinsunar á inntaksþró í Ánanaustum geta skapast aðstæður þar sem neyðarlúga gæti opnast og óhreinsað skólp fer tímabundið í sjó.

Fólki er bent á að halda sig frá sjónum og ströndinni þar sem skólp fer í sjó.

Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.

Neyðarlúgur fráveitu eru til þess gerðar að skólp flæði ekki inn í híbýli fólks ef dælustöðvar bila eða stöðvast.

Spurt og svarað um fráveitu

Hvernig getum við aðstoðað þig?