.
Kaldavatnslaust er vegna bilunar.
Vegna bilunar er kaldavatnslaust við Hringbraut og hluta Framnesvegar. Sjá nánar á korti.
Verið er að staðsetja lekann og viðgerð að hefjast. Það getur verið að loka þurfi tímabundið fyrir vatnið hjá fleirum.
Við vörum þig við slysahættu vegna þess að einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum.
Þurfirðu neysluvatn meðan á kaldavatnsleysinu stendur, geturðu notað vatn úr heita krananum og kælt það. Brennisteinninn í vatninu getur valdið sumum óþægindum en er skaðlaus.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.