.
Heitavatnslaust er vegna viðgerðar
Vegna viðgerðar á heitavatnslögn sem bilaði nýlega þurfum við að loka fyrir heitt vatn í Skeifunni 2, 4, 6, 8, 10, 15, 17 og 19 ásamt Grensásvegi 5, 7, 9, 11 og 13 í dag 23.10 frá klukkan 10:40 - 15:00. Sjá nánar á korti
Bilunin er töluverð áskorun og því þurfum við að loka núna með svo stuttum fyrirvara. Einhver hús munu verða alveg heitavatnslaus á meðan önnur munu finna fyrir minni þrýstingi á heita vatninu.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.