Kalt vatn komið á að nýju við Fram­nesveg og Sólvalla­götu

.

Kaldavatnslaust er vegna viðgerðar.

kl. 18:15 umfang viðgerðar reyndist mun minna en við fyrstu sýn. Allir notendur eru því komnir með vatn að nýju
Vegna viðgerðar verður kaldavatnslaust við Framnesveg 50-58A og Sólvallagötu 67 - . Sjá nánar á korti.

Við vörum þig við slysahættu vegna þess að einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum. Ef þú þarft að sturta niður úr salerninu geturðu notað til þess heita vatnið.

Þurfirðu neysluvatn meðan á kaldavatnsleysinu stendur, geturðu notað vatn úr heita krananum og kælt það. Brennisteinninn í vatninu getur valdið sumum óþægindum en er skaðlaus.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Hvernig getum við aðstoðað þig?