- .
Veitur í samstarfi við Mílu og Ljósleiðarann tengja nýbyggingar
Um verkefnið: Veitur í samstarfi við Mílu og Ljósleiðarann leggja raf- og fjarskiptalagnir í gangstétt meðfram Bakkabraut og á horninu við Vesturvör. Skurðurinn fer frá Nesvör að Vesturvör og þverar þar innkeyrslur. Aðgengi að fyrirtækjum verður tryggt allan tímann.
Á einhverjum tímapunkti þarf Vatnsveita Kópavogs að þvera götuna, en nákvæm dagsetning og staðsetning er ekki ljós.
Hitaveitulagnir verða lagðar innan athafnasvæðis verktaka.
Vinnusvæði: Í gangstétt við Bakkabraut 12-16
Tímaáætlun: September og október 2024
Verkefnastjóri Veitna: Einar Þórðarson Waldorff