- .
Information in English below
Uppfært 05:42 Allir notendur eiga að vera komnir með fullan þrýsting á heitu vatni að nýju
Uppfært 04:11 Byrjað er að hleypa á vatni og það tekur tíma fyrir þrýsting að byggjast upp. Það er eðlilegt að lekar geti komið upp þegar vatninu er hleypt á aftur og þá verður að hringja í neyðarsíma Veitna 516 6161.
Vegna viðhalds á tengingu við dælustöð í Öskjuhlíð verður heitavatnslaust í Vesturbæ, Miðborg og hluta af Hlíðum miðvikudagskvöld 10.jún klukkan 22:00 - fram undir morgun fimmtudaginn 11.júní
Verið er að uppfæra búnað dælustöð í Öskjuhlíð til að auka afhendingaöryggi og tryggja afkastagetu til að anna þörfum vaxandi samfélags.
Mikilvægt er að íbúar hafi skrúfað fyrir krana til að koma í veg fyrir slys og tjón þegar vatnið kemur á aftur.
Við bendum húseigendum á að huga að sínum innanhússkerfum. Félag pípulagningameistara hefur tekið saman leiðbeiningar fyrir húseigendur. Gott er að hafa gluggana lokaða á þessum tíma til að halda varmanum inni.
Þegar vatni er hleypt aftur á viðamikið lagnakerfi sem sumt er komið til ára sinna er eðlilegt að lekar geti komið upp. Í slíkum tilvikum er mikilvægt að tilkynna það svo hægt sé að bregðast við sem fyrst.
Neyðarsími Veitna er 516-6161
Komi upp lekar innanhúss þarf að hafa samband við pípara.
Við munum upplýsa um gang mála á þessari síðu.
Sjá nánar á stærra korti hér.
_____________________
English below
Updated 05:42 All users should have full pressure on hot water
Updated 04:11 we have started to restore hot water into the system but it takes time for pressure to build up in the system. It is normal for leaks to occur when the water is turned back on. If a leak is detected, please call Veitur’s emergency number at 516 6161.
Due to maintenance on a connection to the pumping station in Öskjuhlíð, there will be no hot water in Vesturbær, Miðborg and parts of Hlíðar, from Wednesday 10 June at 22:00 until early morning on Thursday 11 June.
It is important that residents turn off their taps to prevent accidents and damage when the water is turned back on.
We advise property owners to check their internal plumbing systems. The Association of Master Plumbers has compiled guidance for property owners. It is also a good idea to keep windows closed during this time to retain heat indoors.
When water is restored to an extensive pipeline system, some of which is old, leaks may naturally occur. In such cases, it is important to report them so that action can be taken as quickly as possible.
Veitur´s emergency number is 516-6161.
If leaks occur indoors, a plumber should be contacted.
We will provide updates on this page.
See on map here.
Vegna uppfærslu búnaðar má búast við þrýstingsfalli á heitu vatni í Hlíðum og Holtum á meðan viðhaldi stendur. Sjá nánar á korti.