.
Heitavatnslaust er vegna viðgerðar.
Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust í Skeifunni 3, 9, 11 og 13 þann 22.12.22 frá klukkan 09:00 til klukkan 11:00. Sjá nánar á korti.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.
Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.