- .
Veitur tengja rafmagn og heitt og kalt vatn.
Veitur munu leggja lagnir fyrir heitt og kalt vatn sem og rafmagn í Norðurstíg. Loka þarf fyrir umferð niður í gegnum Norðurstíg í eina viku þegar vinna hefst. Hjáleiðir verða tryggðar fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
Innkeyrsla að bílastæðum verður aðgengileg með akstursbrú á meðan vinnu stendur, þó gera megi ráð fyrir að henni þurfi að loka í stutta stund hluta úr degi á einhverjum tímapunkti.
Gengið verður frá yfirborði að verki loknu, þó gera megi ráð fyrir að veðurfar hafi áhrif á hvenær endanlegur yfirborðsfrágangur verði mögulegur.
Tímaáætlun: 28. febrúar til 3. apríl.
Umsjón með verki: Sigurveig Erla Þrastardóttir