.
Heitavatnslaust er vegna viðgerðar.
Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust í Suðurhellu 8-10 og 7 og Norðurhellu 10-13-15 og 17 fim. 12.jan klukkan 13:00-14:00 Sjá nánar á korti.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.
Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.