.
Skólp fer í sjó frá dælustöð.
Uppfært kl. 13.15: Neyðarlúgan opnaðist kl. 9.43 og lokaði aftur kl. 10.01, samtals í 18 mínútur.
Vegna viðhalds fer skólp í sjó frá dælustöðinni við Laugalæk/Kirkjusand þann 8.júní í stuttan tíma einhvern tíman á tímabilinu á milli kl. 10 og 16.
Fólki er bent á að halda sig frá þeim stað sem neyðarlúgan opnast.
Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.
Neyðarlúgur eru til þess gerðar að skólp flæði ekki inn í híbýli fólks ef dælustöðvar bila eða stöðvast.