- .
Önnur af tveimur borholum er í viðgerð
Þorlákshöfn og nágrenni fá heita vatnið til sín frá tveimur borholum. Nú hefur komið upp bilun við aðra þeirra með þeim afleiðingum að hún nýtist ekki hitaveitunni. Hin holan er í fullum rekstri og stendur vel undir notkun íbúa en Veitur hafa óskað eftir því við stórnotendur á svæðinu að takmarka notkun sína. Það er gert til að tryggja megi heimilum heitt vatn til húshitunar.
Viðgerð er í undirbúningi og framkvæmdir við holuna hefjast á sunnudaginn, en óljóst er hvenær henni verður lokið. Á meðan þessu stendur getur komið til þess að íbúar finni lítillega fyrir þessu, en það er þó frekar ólíklegt.
Íbúar eru hvattir til að fara sparlega með heita vatnið á meðan unnið er að viðgerð og aðstoða þannig við að tryggja áfram öllum íbúum þessi lífsgæði sem heita vatnið gefur okkur.