Á horninu við Njálsgötu 1 eru Veitur að endurnýja lagnir fyrir heitt og kalt vatn sem og rafmagn.
Áætlun gerir ráð fyrir að verkið taki 2-3 vikur. Gengið verður frá yfirborði að vinnu lokinni, en búast má við að veðurfar geti haft áhrif á hvenær endanlegur yfirborðsfrágangur verður mögulegur.
Veitur endurnýja lagnir til að tryggja öllum íbúum nauðsynlega innviði og lífsgæði til framtíðar.