.
Heitavatnslaust er vegna rafmagnsleysis hjá Rarik
Vegna rafmagnsleysis hjá Rarik missum við út dælustöðvar við Ásmundarstaðir, Ás og Kálfholt en við þetta verða viðskiptavinir með minnkandi þrýsting og jafnvel einhverjir án vatns - . Sjá nánar á korti.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.