Rafmagn komið á aftur í Mosfellsbæ

.

Verið er að staðsetja bilun og verður uppfært hér um leið og við vitum meira

Verið er að staðsetja bilun og verður uppfært hér um leið og við vitum meira

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Uppfært kl. 11.15: Rafmagn er komið á alla notendur í Mosfellsbæ.

Uppfært kl. 11.05:
Einstaka svæði í Mosfellsbæ eru komin aftur með rafmagn.

Uppfært kl. 10.40:
Unnið er að kappi við að greina orsök rafmagnsleysisins. Dælustöðvar sveitarfélagsins fyrir vatnið eru straumlausar og því hefur orðið vatnslaust í einstaka hverfum.

Uppfært kl. 10.15:
Sérfræðingar og tiltækur mannskapur eru að störfum, en ekki er hægt að segja á þessari stundu hvað veldur rafmagnsleysinu. Við leggjum allt kapp á að koma rafmagni á aftur um leið og hægt er.

Uppfært kl. 09.35:
Stór hluti Mosfellsbæjar er rafmagnslaus vegna háspennubilunar. Unnið er að viðgerð.

Hvernig getum við aðstoðað þig?