.
Kaldavatnslaust er vegna bilunar.
Uppfært kl 15:39. Búið er að hleypa á kalda vatnið og ættu allir að vera komnir með kalt vatn.
Vegna bilunar er kaldavatnslaust við Sólvallagötu 66-72 . Sjá nánar á korti.
Við vörum þig við slysahættu vegna þess að einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum. Ef þú þarft að sturta niður úr salerninu geturðu notað til þess heita vatnið.
Þurfirðu neysluvatn meðan á kaldavatnsleysinu stendur, geturðu notað vatn úr heita krananum og kælt það. Brennisteinninn í vatninu getur valdið sumum óþægindum en er skaðlaus.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.