.
Rafmagnslaust vegna bilunar í Skaftahlíð og Lönguhlíð
Vegna bilunar er rafmagnslaust í Skaftahlíð 3-15, 12-22 og Lönguhlíð 4-10, 19-25.
Unnið er að því að greina bilun og vonast er til að rafmagn verði komið á innan stundar. Við munum uppfæra á vef eftir því sem fram vindur.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Uppfært 19:15: Viðgerð fer senn að ljúka og gert er ráð fyrir að rafmagni verði hleypt inn á næsta klukkutímanum.
Uppfært 21:30: Viðgerð hefur verið lokið og rafmagn ætti að vera komið á.