Barón­stígur 20-30, Reykjavík

- .

Viðgerð á háspennustreng

Við skipulagða bilanaleit kom í ljós að gera þarf við hluta af háspennustreng sem liggur í gangstéttinni. Það er mikilvægt að gera við strenginn sem fyrst til að koma í veg fyrir skyndilegt rafmagnsleysi.

Unnið verður í gangstétt við hús númer 20 og 20A og einnig við hús númer 30. Við áætlum að vinnu verði lokið fyrir miðjan apríl. Aðgengi íbúa að húsum sínum er að sjálfsögðu tryggt á meðan vinnu stendur.

Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks, hjáleiðir settar upp þar sem það á við og gengið frá yfirborði að verki loknu. Í einhverjum tilvikum er sett bráðabirgðamalbik til að tryggja öryggi þar til hægt er að ganga endanlega frá gangstéttinni.

Hvernig getum við aðstoðað þig?