Víði­melur, Reykjavík

- .

Endurnýjun hitaveitu- og raflagna

Uppfært 27.8.2025: Framkvæmdin hefur reynst umfangsmeiri en gert var ráð fyrir. Þar af leiðandi hefur verkinu seinkað og er nú áætlað að framkvæmdum ljúki þann 15. september 2025.

Uppfært 24.6. 2025: Ákveðið hefur verið að leggja rafstreng út á horn sem lengir framkvæmdatímann.

Uppfært 13.3.2025: Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist eftir páska og standi fram í miðjan júlí.

Uppfært 2.9.2024: Ákveðið hefur verið að fresta framkvæmdum til vorsins 2025 til að koma í veg fyrir tafir vegna vetrarveðurs.

Um verkefnið: Við Víðimel eru hitaveitulagnir í stokk sem eru frá 1961 og komnar á tíma fyrir endurnýjun. Samtímis verða raflagnir frá árinu 1971 endurnýjaðar. Þvera þarf götuna á tveimur stöðum til að hægt sé að leggja lagnir í jörðu, en það verður ekki gert á sama tíma. Heimlagnir verða endurnýjaðar þar sem þess gerist þörf.

Verkið er unnið í smærri áföngum, en gera má fyrir að bílastæði loki og aðgengi bíla verði skert.

Gangandi og hjólandi vegfarendur komast ávallt leiðar sinnar. Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks.

Vinnusvæði: Frá vestari enda Víðimels áleiðis að Hofsvallagötu.

Tímaáætlun: Uppfærð tímaætlun:Vor og fram í miðjan júlí 2025

Verkefnastjóri Veitna: Einar Waldorff
Samskipti: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna

Hvernig getum við aðstoðað þig?