.
Lífríkið nýtur vafans

Veitur hafa stöðvað borframkvæmdir í Skammadal á meðan unnið er að frekari mótvægisaðgerðum til að tryggja að lífríkið fái að njóta vafans.
Óháðir sérfræðingar verða fengnir til að meta áhrif af því sem þegar hefur verið veitt í ána og Varmárósa.
Við skiljum vel að ásýnd Varmár og umræðan undanfarna daga veki áhyggjur hjá íbúum og þeim sem tengjast svæðinu sterkum böndum. Við tökum það mjög alvarlega.
Við vinnum náið með eftirlitsaðilum og sérfræðingum að því að meta umhverfisáhrifin og tryggja að lífríkið njóti vafans. Við munum halda áfram að upplýsa um stöðuna hér á síðunni.
Uppfært 27.5. kl. 17.15:
Veitur hafa í dag unnið áfram að aðgerðum vegna áhrifa frá borframkvæmdum í Skammadal á Varmá. Boranir voru stöðvaðar klukkan 9:20 í morgun á meðan unnið er að frekari úrbótum og mótvægisaðgerðum á svæðinu.
Unnið er með Umhverfis- og orkustofnun, viðkomandi Heilbrigðiseftirliti (HEF) og sérfræðingum VSÓ sem sinna vöktun og rannsóknum á lífríki Varmár. Verið er að setja upp endurskoðað aðgerða- og vöktunarplan sem felur meðal annars í sér auknar sýnatökur á vatni, borvökva og áhrifum á lífríki árinnar.
Sýni eru rannsökuð, meðal annars fínagnir í borvatninu til að meta hvernig þær hegða sér í vatni og hvers konar frekari hreinsunaraðgerðir geti skilað bestum árangri.
Samhliða þessu eru Veitur að meta fjölbreyttar tæknilegar lausnir til að draga enn frekar úr áhrifum framkvæmdanna á umhverfið.
Spurt og svarað
Af hverju var borun stöðvuð núna?
Við stöðvuðum borun þegar ljóst var að nýja svarfþróin virkaði ekki eins og við var búist. Fínasta efnið hefur ekki botnfallið eins og það ætti að gera og við því erum við að bregðast. Magn og hegðun fínustu agnanna er önnur en búist var við og áhrifin á m.a. Varmá meiri en áætlað hafði verið.
Hvað eru Veitur að gera til að vernda Varmá og lífríkið þar?
Óháðir sérfræðingar taka sýni úr vatninu og meta lífríkið í ánni og við hana, frá svæðinu þar sem vatnið frá bornum hefur runnið og niður að Varmárósum.
Sýni úr vatninu frá bornum eru tekin og send til rannsóknar til að meta hvaða aðgerðir eru mögulegar til að fínefnið berist ekki í læki og ár á svæðinu.
Af hverju hætta Veitur ekki alveg við borunina?
Boranir á Reykjum og í Skammadal eru hluti af umfangsmestu jarðhitaleit okkar í 50 ár. Tryggja þarf heitt vatn fyrir vaxandi samfélag á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Auðlindasérfræðingar Orkuveitunnar ásamt ráðgjöfum telja að lághitasvæðið á Reykjum og nágrenni geti gefið meira heitt vatn en nýtt er í dag.
Af hverju kemur vatn frá borunum?
Þegar borað er eftir heitu vatni er notað kalt vatn til að hreinsa upp úr holunni bergmulninginn sem myndast við borun. Það er gert til að hann stífli ekki heitavatnsæðar sem nýta á. Vatnið fer síðan í gengum svarfþrær þar sem borsvarfið (bergmulningurinn) fellur til botns áður en vatninu er veitt áfram. Í Skammadal hefur fíngerðasta efnið ekki fallið til botns og því borist niður árfarveginn.
Var farið eftir reglum og leyfum?
Framkvæmdirnar eru unnar í samráði við eftirlitsaðila og samkvæmt þeim leyfum og skilyrðum sem gilda um verkefnið. Nú er jafnframt verið að fara yfir framkvæmdina, mótvægisaðgerðir og viðbrögð í samstarfi við eftirlitsaðila og sérfræðinga til að meta hvað má betur fara.
Hafa framkvæmdirnar verið stöðvaðar alveg?
Boranir eru stöðvaðar tímabundið á meðan unnið er að frekari úrbótum, rannsóknum og mati á næstu skrefum. Áður en framkvæmdir hefjast aftur þarf að liggja betur fyrir hvernig hægt er að draga frekar úr áhrifum á umhverfið.
Er verið að rannsaka áhrifin óháð Veitum?
Já. Unnið er með óháðum sérfræðingum og eftirlitsaðilum við sýnatökur, vöktun og mat á áhrifum framkvæmdanna á vatnsgæði og lífríki.
Verður haldinn íbúafundur?
Veitur vinna nú að undirbúningi upplýsingafundar fyrir íbúa og hagaðila þar sem farið verður yfir stöðu mála, þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í og næstu skref.
Verður fylgst með ánni áfram?
Já. Vöktun á ánni heldur áfram þar til sérfræðingar meta að ekki sé lengur þörf á vöktun.
Hvað verður gert þegar framkvæmdum lýkur?
Lögð er áhersla á að ganga vel frá framkvæmdasvæðinu að borunum loknum. Jafnframt verður farið yfir hvaða frekari aðgerðir eða úrbætur kunna að vera nauðsynlegar í kjölfar rannsókna og mats sérfræðinga.
Tengdar fréttir
Borframkvæmdir í Skammadal og áhrif á Varmá