Um verkefnið: Yfirborð verður rofið við báða enda vinnusvæðisins. Þar verður grafið niður á vatnslögn við hitaveitustokkinn og lögnin fóðruð. Vatnsveitulögnin er stofnlögn frá 1960.
Hitaveitustokknum verður ekki raskað.
Verkefnið er hluti af nýsköpun hjá Veitum þar sem lagnir eru fóðraðar í stað þess að grafa þær upp og skipta þeim alveg út fyrir nýjar lagnir. Fóðrun eykur líftíma lagna.
Sérfræðingur frá Noregi kemur til landsins að aðstoða Veitur við fóðrun.
Uppfært 29.10.2024: Fóðrun lagnarinnar gekk mjög vel og framar vonum. Því miður voru þó gallar í hönnun sem gera það að verkum að efni sem þarf til að tengja á staðnum er ekki til á landinu og þar af leiðandi er holur enn opnar og verða þar til efnið kemur til landsins.
Uppfært 3.9.2024: Enn eru opnar tvær holur við báða enda, en það hefur orðið bið eftir aðföngum. Þess vegna er vinnu ekki lokið eins og áætlað var.
Uppfært 29.7.2024: Vinna við fóðrun er að hefjast í dag. Gera má ráð fyrir einhverju ónæði á meðan því stendur, eða fram að helgi. Fóðrun er hluti af skurðlausum lausnum sem eru mun betri fyrir umhverfið, en framkvæmdir á þessu svæði með skurðum væru annars allt að fjögurra mánaða vinna.
Vinnusvæði: Við hitaveitustokkinn milli Sogavegar og austan við hverfið.
Tímaáætlun: Júlí og ágúst 2024
Verkefnastjóri: Sigríður Sif Magnúsdóttir
Samskipti: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna
Verktaki: Almaverk