.
Information in English below
Heitavatnslaust verður í öllum Grafarvogi, sjá kort, frá miðnætti til hádegis (kl. 00:00-12:00) miðvikudaginn 30.9.
Veitur eru að endurnýja mikilvægan búnað sem er bilaður og þarf að laga fyrir veturinn. Þá þarf að loka fyrir heita vatnið á meðan.
Við hvetjum íbúa til að loka gluggum til að halda hitanum inni á meðan lokun stendur.
Mikilvægt er að hafa skrúfað fyrir krana innanhúss til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar heita vatnið kemur aftur á. Húseigendum er bent á að huga að sínum innanhússkerfum, til dæmis gólfhitakerfum. Félag pípulagningameistara hefur gefið út leiðbeiningar fyrir húseigendur.
Þegar vatninu er hleypt á lagnir að nýju er það gert hægt og rólega. Það geta komið upp lekar í viðamiklu dreifikerfi eftir svona lokun og þá er mikilvægt að láta okkur vita strax í neyðarsímann 561 6161.
Búnaður sem verið er að laga er mikilvægur fyrir hitaveituna á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Spurt og svarað
Af hverju þarf að loka svona lengi?
Allt heita vatnið fyrir Grafarvog nýtir búnaðinn sem um ræðir. Það tekur þetta langan tíma að tæma lagnir og setja upp búnaðinn áður en hægt er að hleypa vatninu á aftur. Lagnirnar sem tengjast í gegnum búnaðinn eru mjög stórar og það tekur tíma, m.a. að sjóða þær saman til að það endist lengi.
Af hverju er þetta gert að nóttu til?
Við vildum fara þá leið til að hægt væri að ná upp hita fyrir heimilin fyrir kvöldið og nóttina. Það skiptir minna máli fyrir Veitur hvenær þetta er gert þar sem vinnan er innanhúss og birtan utandyra hefur því ekki áhrif.
Hvað á ég að gera ef það lekur innanhúss hjá mér eftir þetta?
Þá þarf að kalla til pípara og tryggingar. Öll innanhússkerfi eru í eigu húseiganda og á ábyrgð þeirra.
Hvað ef það kemur leki í garðinum eða úti í götu?
Þá þarf að heyra í okkur í neyðarsímanum 561 6161 og við komum að gera við. Fyrst er gert við til bráðabirgða og þá er vatnið tekið af stutta stund á meðan. Þegar við komum aftur í endanlega viðgerð verður heita vatnið tekið af og látið vita með fyrirvara.
----------------------------------------
No hot water in Grafarvogur
There will be no hot water supply throughout Grafarvogur, see map, from midnight until noon (00:00-12:00) on Wednesday, 30 September.
Veitur is replacing important equipment that has failed and must be repaired before winter. To carry out this work, the hot water supply must be shut off temporarily.
We encourage residents to keep windows closed to retain heat in their homes while the shutdown is in effect.
It is important to ensure that indoor hot water taps are turned off to reduce the risk of accidents or damage when the hot water supply is restored. Homeowners are also advised to pay attention to their internal systems, such as underfloor heating systems. The Association of Master Plumbers has published guidance for homeowners (in Icelandic).
When the hot water supply is restored, the system will be brought back into operation gradually. Leaks can occur in an extensive distribution network following a shutdown of this kind, and it is important to report them immediately by calling our emergency line, tel. 561 6161.
The equipment being repaired is important for the district heating system across the entire Capital Region.
Frequently Asked Questions
Why does the hot water need to be shut off for so long?
All hot water supplied to Grafarvogur passes through the equipment in question. Draining the pipes, installing the new equipment and bringing the system back into operation takes time. The pipes connected to the equipment are very large, and work such as welding them together must be carried out carefully to ensure long-term reliability.
Why is the work being carried out overnight?
We chose this timing so that homes can regain heat before Wednesday evening and overnight. For Veitur, the timing is less important, as the work takes place indoors and is therefore not affected by daylight conditions.
What should I do if I discover a leak inside my property after the shutdown?
If a leak occurs inside the property, you should contact a licensed plumber and your insurance company. Internal heating and water systems are the responsibility of the property owner.
What if there is a leak in my garden or in the street?
Please contact our emergency line at 561 6161, and we will attend to the repair. Any urgent repair will first be carried out as a temporary fix, which may require the hot water supply to be interrupted for a short period. When a permanent repair is needed, the hot water supply will be shut off again and advance notice will be provided.