Grótta, Seltjarn­arnes

- .

Rekstraröryggi Gróttuvita bætt

Um verkefnið: Veitur færa rafstreng sem er skemmdur og í hættu vegna ágangs sjávar við landtökuna. Grafa þarf um 40 metra við landtöku við Albertsbúð til að tryggja rafmagn fyrir eyjuna. Vitinn verður tengdur við jarðstreng sem þegar er til staðar. Við Vitavarðarhúsið og vitann sjálfan þarf að grafa holur til að tengja við strenginn sem liggur þar.

Samhliða þessu mikilvæga verki fyrir rekstur vitans sem er nauðsynlegur fyrir öryggi sjófarenda verður loftlínan í Gróttu sjálfri tekin niður. Þá eru grafnar litlar holur við staurana tvo til að ná þeim upp.

Það stendur ekki til að taka niður staura sem eru á milli Gróttu og lands.

Gengið verður frá öllu yfirborði að verki loknu og unnið í samræmi við kröfur umhverfisstofnunar í eynni.

Vinnusvæði: Við Albertsbúð, Vitavarðarhús, Fræðasetur og Gróttuvita.

Tímaáætlun: September og október 2024

Yfirumsjón með verki: Hilmar Jónsson

Samskipti varðandi verkið: Silja Ingólfsdóttir hjá þjónustu Veitna

Hvernig getum við aðstoðað þig?