Rates

Rates are only available in Icelandic at the moment. Please note that all rates are published subject to typing errors.

Verðskrá gildir frá 01.01.2024

Verðskrá fráveitu

Samkvæmt 14. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitu er heimilt að innheimta fráveitugjöld af öllum fasteignum þar sem tenging er fyrir hendi við mörk fasteignar. Fráveitugjöld eru undanþegin virðisaukaskatti.

Fráveitugjöld

SvæðiSveitarfélagFast gjaldGrunnurFermetragjaldGrunnur
Veitusvæði IReykjavík12.952kr/matseining/ári499,92kr/m2/ár
Veitusvæði IIAkranes12.952kr/matseining/ári499,92kr/m2/ár
Veitusvæði IIIBorgarbyggð17.161kr/matseining/ári662,28kr/m2/ár

Heimilt er að innheimta sérstakt aukagjald ef frárennsli frá gjaldskyldum aðila er svo mengað að það leiði til sérstakra aðgerða fráveitunnar, svo sem sértækrar hreinsunar eða breytinga í kerfinu. Er þá innheimtur raunkostnaður sem hlýst af viðkomandi aðgerð.

Skýringar:

  • Fráveitugjald samanstendur af fastagjaldi á hverja matseiningu og fermetragjaldi eftir stærð samkvæmt fasteignaskrá. Heimilt er að reiknað sé af flatarmáli allra mannvirkja á fasteign í samræmi við ofangreind lög.
  • Fyrir fasteignir í landi Krosslands í Hvalfjarðarsveit gildir sama gjald og á Akranesi.
  • Álögð fráveitugjöld nema að hámarki 0,5 % af fasteignamati viðkomandi eignar.
  • Gjalddagar álagðra fráveitugjalda er 2. virkur dagur mánaðar. Álagning í upphafi árs deilist í 9 greiðslur frá febrúar til október. Hægt er að óska eftir einum gjalddaga sem þá er 3. júní.
  • Heimilt er Veitum að gjaldfella álagningu ársins verði greiðslufall á einum eða fleiri reikningum álagningarinnar.

Tengigjöld

SveitarfélagSvæðiTengigjald1Grunnur
ReykjavíkNorðlingaholt489.153kr/lóð
Reykjavík, AkranesNý hverfi, þar sem tengingar eru til staðar inn á lóð558.278kr/lóð

Verðin miðast við tvöfalda 150 mm tengingu við lóðamörk og fyrstu tengingu inn á lóð, lóðarhafar greiða raunkostnað fyrir umframtengingar og stærri tengingar.

Fyrir stakar lóðir, þar sem tenging er ekki til staðar t.d. vegna þéttingar byggðar, greiðir lóðarhafi raun-kostnað af nýrri tengingu við virkt fráveitukerfi.

Hafi lóðarhafi eða verktaki á hans vegum lagt tengingu undir eftirliti Veitna greiðir hann fyrir tengistút við safnkerfi 107.014kr. /lóð.

Skýringar:

Tengigjöldin miðast við byggingarvísitölu nóvember 2023 og uppfærast 1. hvers mánaðar miðað við þá vísitölu. Tengigjöld í Borgarbyggð eru innheimt af viðkomandi sveitarfélagi.

Þjónustugjöld:

Seðilgjald eða tilkynningar- og greiðslugjald bætist við eftir því sem við á samkvæmt verði á hverjum tíma en það byggist á raunkostnaði. Jafnframt bætist við gjald vegna innheimtuviðvörunar ef til vanskila kemur, 20 dögum eftir gjalddaga. Innheimtugjöld miðast við heimildir í reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar.